Lagfæra girðingu, hreinsa og jafna völlinn, merkja. Hér er í raun um viðhaldsframkvæmd að ræða, sem ekki þarf að kosta mikið til en mun örugglega auka á ánægju og gleði krakka í nágrenninu.
Völlurinn er fyrir hendi, hefur ekki verið haldið við, girðing götótt en með litlum tilkostnaði má lagfæra þetta. Mun örugglega slá í gegn hjá yngri kynslóðinni
Þegar það verður skipt um gervigras á Leiknisvelli á næsta ári, mætti þá ekki nota gamla gervigrasið á þennan völl !
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7976
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation