Ég vil fá heitt vatn í brekkuna við Frostafold 14. Í Grafavogi. Það getur verið erfitt að fóta sig, í miklum snjó og hættulegt að labba hana, í hálku. Nú vona ég að þið geri alvöru úr því og bætið göngustígin og geri hann slysalausan. Ég hef minnst á hana áður. Svo vantar mat og lyfjabúð í Foldatorg. Sem mér finnst vera ómissandi. Núna þarf ég að taka strætó í aðra búð, ef mig vantar mjólk í kaffið og/eða lyfin sem ég þarf að nota. Svo vildi ég að allir strætóvagnar aki á 15 mín frest allan dag
Eins og ég hef minnst oft á, er ég hrædd að labba í snjó og hálku. Þess vegna bið ég um að brekkan verði tekin í gegn og sett heitt vatn í hana, til að gera hana slysalausa. Svo bráðvantar mat og lyfjabúð í Foldatorgið. Við, sem búum í Foldahverfinu, eigum ekki að þurfa að taka strætó eða keyra langt í aðra búð, eftir því sem okkur vantar mest. Mat og lyf. Svo finnst mér að allir strætóvagnar, eigi að keyra á 15 mín fresti alla daga, allan daginn. Og byrja kl 7 alla daga til miðnættið.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation