Mikilvægt er að bæta samgöngukerfi Reykjavíkur, eða Strætó BS stofnleiðir. Bæði þarf að fjölga þeim og skipuleggja betur. Þá að ný strætóleið verði bætt við, amk á háannartímum sem fer amk frá JL-húsinu/Granda framhjá HÍ, Landspítalanum í Hringbraut.
Þessi breyting eða viðbót myndi auðvelda þeim ótal mörgum háskólanemum sem nýta sér strætókerfið og ófáu starfsmönnum Landspítalans á Hringbraut sínar daglegu ferðir til og frá skóla/vinnu talsvert.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation