Sundabraut strax.
Með Sundabraut má stytta allar leiðir sem liggja frá Reykjavík vestur um land. Sundabraut er búin að vera á teikniborðinu í áratugi en alltaf er henni slegið á frest. Kjalarnes er hluti af Reykjavík, en fara þarf í gegn um annað sveitarfélag Mosfellsbæ til að komast þangað. Að mínu mati hefur of miklu fjármagni verið eytt í óteljandi og óþolandi hringtorg í Mosfellsbæ. Reykjavíkurborg ætti að berjast fyrir þessari framkvæmd þó hún sé ekki eingöngu í þágu okkar Reykvíkinga.
Í samgögnuáætlun 2011-2022 segir orðrétt: "Þá hefur mikill viðsnúningur orðið í viðhorfum til æskilegra framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu frá 2008 að telja. Nú vilja flestir auka almenningssamgöngur, minnka umferð einkabíla og bæta göngu- og hjólreiðastíga. Áður vildu flestir flýta Sundabraut og efla stofnbrautakerfið. Stefnumið og áherslur samgönguáætlunar 2011–2022 eru í samræmi við efnahag þjóðarinnar og greinilegar viðhorfsbreytingar þeirra sem nota samgöngukerfið." Á þetta meinta viðhorfi borgarbúa til samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu virkilega að setja allar úrbætur á samgöngumálum í Reykjavík á bið á meðan hver jarðgöngin á fæti öðru eru réttlætt með tímasparnaði á landsbyggðinni. Það er komin tími fyrir jarðgögn í Reykjavík!
Innríkisráðherra kynnti í dag 12 ára áætlun fyrir vegaframkvæmdir í landinu. Þar kemur fram að 240 milljarðar verði settir í jarðgögn, brýr og aðrar vegaframkvæmdir næstu árin. Stærsti hlutinn fer í kostnaðarsamar framkvæmdir úti á landi, jarðgöng á Vestfjörðum og víðar. Framkvæmdir s.s. Sundabraut og Miklabraut í stokk eru varla nefndar þrátt fyrir að þjóna mun fjölmennari hópi landsmanna. Borgarbúar aka lengri vegalengdir og verja meiri tíma í umferðinni daglega. Hvers eigum við að gjalda?
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation