Sárlega vantar undirgöng í stað gönguljósanna á Miklubraut (á móti 365 miðlum).
Miklabrautin sker Hlíðahverfi í tvennt og á þessum stað er yfir 5 akreinar að fara. Mikið af börnum fara þarna yfir á hverjum degi að sækja skóla og/eða vini sem búa auðvitað hér og þar um hverfið. Umferðin er afar hröð þarna, eins og allir vita. Að fara yfir 5 akreinar er ansi löng leið fyrir litla fætur og flókið.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation