Hvað viltu láta gera? Setja upp ærslabelg við hliðina á aparólunni sem er í lautinni við Seljakot og Ölduselsskóla Hvers vegna viltu láta gera það? Mikil eftirspurn hefur verið eftir ærslabelg í Seljahverfi. Skemmtilegt útisvæði er í Seljadal sem býður m.a. upp á frisbígolf, aparólu og grillaðstöðu. Ærslabelgur myndi slá í gegn hjá öllum, sérstaklega ungum börnum og myndi ramma inn dalinn sem fullkomið fjölskyldusvæði. Aðgengi að svæðinu er mjög gott úr öllum áttum.
Frábær hugmynd, yrði notað mjög mikið af mínum börnum
Frábær hugmynd fyrir þetta svæði
Skemmtileg og góð hreyfing fyrir börnin
Allir krakkar elska þetta
Geggjud hugmynd👍
Væri æði
Þetta væri algjör snilld fyrir krakkana í hverfinu. Eykur gleðina við útileikina og alveg brilliant staðsetning.😍
100 prósent spennandi hlutur..algert æði
Hreyfing, bætir, kætir. Ærslabelg í öll hverfi takk, líka í Bakkana takk.
Tel það mjög gott að styrkja þetta svæði enn frekar. Sérstaklega mikilvægt svæði fyrir nemendur í Ölduselsskóla þar sem þetta er miðja hverfisins og öflugt svæði miðsvæðis stuðlar að frekari samgangi og blöndun barna sem búa í jaðri hverfisins. Góð hugmynd fyrir börnin og sömuleiðis staðsetningin.
Gott tækifærti til að nýta dalinn og betur fyrir börnin í hverfinu.
Frábær viðbót í Seljahverfið!
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin hefur verið aðlöguð og sameinuð við aðrar hugmyndir um ærslabelgi í Seljahverfi þar sem að ýmsu þarf að huga þegar verið er að velja staðsetningu ærslabelgja. Horfa þarf til fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði, hávaðamengunar og aðgengis. Þarf að vera á opnu svæði í borgarlandi og nóg rými og pláss fyrir belginn. Svæðið þarf að vera tiltölulega slétt, ekki í halla, og jarðvegur má ekki vera grýttur. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Geggjuð hugmynd!
Èg keyri nánast daglega à sumrin upp ì Kópavog með strákana mína 11 og 14 ára og vini þeirra til að hoppa á belgnum þar.
Mjög góð staðsetning og yrði örugglega vinsælt hjá börnunum
Krakkarnir myndu elska það
Frábær hugmynd, góð staðsetning, yrði afar vinsæll viðkomustaður.
Lífgar upp á dalinn
Þetta er geggjuð hugmynd
Frábær hugmynd og góð staðsetning - en nauðsynlegt að hafa eftirlitsmyndavélar líka svo unglingar á vespum sem leika sér að því að keyra yfir belginn og skemma hann komist ekki upp með slík athæfi.
Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation