Bekkur sem er á gangstéttinni þar sem Háleitisbraut og Fossvogsvegur mætast hallar eins og gatan þannig að það er ekki gott að nota hann því maður vill renna niður í neðra hornið. Gott væri að fá hann alveg láréttan svo hann nýttist betur.
Í nágrenni við þennan bekk býr mikið af fullorðnu fólki sem vill geta notað bekki í nágrennu til hvildar á gönguferðum sínum, þessi bekkur nýtist ekki eins og hann er.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation