Leiksvæðið á gamla Ármannsvellinum er orðið lúið og óheillandi. Endurhanna mætti svæðið í heild með það að markmiði að gera það fjölskylduvænna.
Með því að búa til fallegt og nytsamlegt grænt svæði á þessum stað mætti gera hverfið mun meira aðlaðandi fyrir fjölskyldur sem og aðra. Það hafa bæst við margar nýjar fjölskyldur í Túnin að undanförnu í kjölfar nýbygginga.
Þessi hugmynd var sameinuð við hugmyndina ,,Fallegur, skemmtilegur rólóvöllur við Miðtún'' og er í kosningu.
Vantar sárlega skemmtilegan og fjölskylduvænan leikvöll í Túnin.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation